Atvinnuuppbyggingarsjóður Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Stofnaður hefur verið sjóður til atvinnuuppbyggingar á vegum sveitarfélagsins. Megin hlutverk hans er að efla byggð og atvinnu í sveitinni. Sjóðnum er ætlað að styrkja verkefni sem lúta að atvinnuþróun og nýsköpun eins og segir í 4. gr. samþykktarinnar.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur er eigandi sjóðsins og stofnfé lagt fram úr sveitarsjóði. Umsjón er í höndum sveitarstjórnar.
Samþykktir og úthlutunarreglur fyrir Atvinnuuppbyggingarsjóð
Skeiða- og Gnúpverjahrepps
1. gr.
Atvinnuuppbyggingarsjóður er sjálfstæður sjóður í eigu Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
2. gr.
Umsjón sjóðsins er í höndum sveitarstjórnar sem fjallar um umsóknir og gerir tillögur að úthlutun úr honum. Áður en til úthlutunar getur sveitarstjórn aflað faglegs álits á umsóknum.
3. gr.
Meginhlutverk sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu.
4. gr.
Sjóðnum er ætlað að veita styrki til verkefna sem lúta að atvinnuþróun og nýsköpun í sveitarfélaginu. Þeir sem lögheimili hafa, reka atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu eða ætla að hefja atvinnurekstur í sveitarfélaginu hafa alla jafnan forgang að úthlutun.
5. gr.
Styrkir úr sjóðnum skulu almennt ekki vera hærri en sem nemur 50% af heildarkostnaði.
6. gr.
a) Forsenda styrkúthlutunar er að umsækjendur leggi fram kostnaðar- og verkáætlun með umsókn. Þá skal vinna framvinduskýrslu og/eða lokaskýrslu vegna verksins.
b) Almennt skal miða við að styrkir séu greiddir út samkvæmt framvindu verksins. Þó er heimilt að greiða þriðjung væntanlegs styrks við upphaf verksins, næsta þriðjung í samræmi við framvindu og síðasta þriðjung við verklok þegar fyrir liggur lokaskýrsla og/eða kvittanir fyrir útlögðum kostnaði.
c) Breytist forsendur verksins verulega á styrktíma er hægt að slíta samstarfi við þann sem nýtur styrks og fella niður þær greiðslur sem ekki hafa verið inntar af hendi.
d) Verði styrkþegi uppvís að röngum upplýsingum og/eða að ekki hafi verið unnið samkvæmt áætlunum er heimilt að krefjast endurgreiðslu á veittum styrk.
7. gr.
Stofnfé sjóðsins verða 10 milljónir króna.
Leitað verður leiða til að efla sjóðinn enn frekar svo sem kostur er.
8. gr.
Varsla og ávöxtun á eignum sjóðsins skal fela í sér trausta fjárvörslu og viðurkenndar ávöxtunarleiðir.
9. gr.
Við úthlutun úr sjóðnum skal aldrei veitt meira fé ár hvert en sem nemur 20% af heildareign sjóðsins hverju sinni.
10. gr.
Einfaldur meirihluti sveitarstjórnar ræður ákvörðunum ef úthlutunum er lokið með atkvæðagreiðslu.
11. gr.
Um hæfi nefndarmanna við umfjöllun og afgreiðslu á úthlutunum úr sjóðnum ber að fara eftir sveitarstjórnarlögum.
12. gr.
Sjóðurinn skal hefja starfsemi 1. apríl 2010. Starfslok hans skulu ákvörðuð af sveitarstjórn en endurskoðun á samþykktum og starfsemi skal fara fram að loknum 2 ára starfstíma. Í ljósi þeirrar endurskoðunar skal taka ákvörðun um framhald starfseminnar.
13. gr.
Verði sú ákvörðun tekin af sveitarstjórn að hætta starfsemi sjóðsins skulu eignir hans renna í sveitarsjóð.
Samþykkt á 62. fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps 16.02.2010.




