486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.
11.02.2010

Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki

  • 1
  • 2
  • 3

Auglýst eftir umsóknum um styrki sem Menningarráð Suðurlands veitir.

                                  Umsóknareyðublað

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.

 

Engar sérstakar áherslur verða settar á þessu ári, en tekið verður mið af eftirfarandi við afgreiðslu umsókna (sbr. 5. grein menningarsamnings fyrir árið 2010):

 

1.      Efla samstarf á sviði menningarmála.

2.      Efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.

3.      Atvinnutækifærum fjölgi á menningarsviðinu.

4.      Styðja við menningartengda ferðaþjónustu.

Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

 

Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2010.

 

Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl 2010. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is . Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is.

Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum . Námskeið í umsóknargerð fer fram 25. febrúar í umsjón Fræðslunets Suðurlands.

Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss.

 

Umsóknareyðublað er einnig hér til hliðar undir Stjórnkerfið/eyðublöð
 

Mynd nr. 1 Þingvallavatn.

Mynd nr. 2 Háifoss.

Mynd nr. 3 Hekla (Skjólkvíar 1970).

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar