Jafnréttisáætlun Skeiða- og Gnúpverjahrepps
1. Inngangur
Jafnréttisáætlun Skeiða-og Gnúpverjahrepps byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Jafnréttisáætlunin tekur til stjórnkerfis og starfsmanna sveitarfélagsins annars vegar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem stofnanir sveitarfélagsins veita íbúum. Auk þess eru í áætluninni tilmæli til einstaklinga og yfirvalda, stofnana og fyrirtækja sem ekki heyra undir stjórn sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps sinnir hlutverki jafnréttisnefndar í sveitarfélaginu.
2. Markmið
Markmið jafnréttisáætlunar er að stuðla að jafnri stöðu einstaklinga í Skeiða-og Gnúpverjahreppi og jöfnum möguleika kynjanna til að nýta sér það lagalega jafnrétti sem er til staðar. Þetta á við um menntun, atvinnulíf og félagslíf. Það er stefna Skeiða-og Gnúpverjahrepps að allir njóti sömu tækifæra, fái sömu laun fyrir sömu vinnu og hafi sömu réttindi og sömu möguleika til áhrifa í samfélaginu.
3. Ákvæði vegna starfsmanna sveitarfélagsins
Nefndir og ráð: Við skipan í nefndir og stjórnir á vegum sveitarfélagsins skal leitast við að hlutföll kynja séu sem jöfnust til að tryggja áhrif kvenna og karla við ákvarðanatöku og stefnumótun í samfélaginu.
Auglýsingar og ráðningar starfsmanna: Jafnréttisnefnd beinir þeim tilmælum til stjórnenda sveitarfélagsins að auglýsa lausar stöður til umsóknar. Auglýsing skal vera aðgengileg öllum.
Starfsmannakjör: Við ákvörðun launa og annarra starfskjara, úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum og uppsagnir skal þess gætt að mismuna ekki eftir kynferði sbr. 24. gr. laga nr. 10/2008 né öðru. Því skal leitast við að meta jafnt mismunandi starfssvið, reynslu og menntun einstaklinga.
Gæta skal þess að konur og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna með vísan í lög um jafna stöðu og rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
Jafnréttisáætlanir: Því er beint til yfirvalda grunn- og leikskóla að vinna að því að mannréttindi séu í hávegum höfð og veita börnum og unglingum hvatningu til að nýta hæfileika sína til fulls, bera virðingu hvert fyrir öðru og efla jákvæð samskipti kynjanna.
4. Jafnréttisáætlanir stofnana
Í upphafi hvers kjörtímabils skulu stofnanir og nefndir sveitarfélagsins gera starfsáætlun í jafnréttismálum. Þar komi fram hvernig stofnanir/nefndir hyggist vinna á grundvelli jafnréttisáætlunarinnar og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar í þeim tilgangi. Hver stofnun skilar starfsáætlun sinni til sveitarstjórnar innan fimm mánaða frá kosningum.
5. Íþrótta- og æskulýðsmál
Tryggja skal eftir föngum að stúlkum og drengjum séu veitt sömu tækifæri til íþróttaiðkana og að kynin sitji jöfn að fjárveitingum á vegum sveitarfélagsins til íþróttaiðkunar.
Þess skal gætt að stúlkur og drengir hafi sömu möguleika til sumarstarfa á vegum sveitarfélagsins.
6. Fræðsla og ráðgjöf
Fræðsla um jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna skal vera virkur þáttur í starfi sveitarfélagsins.
7. Kynning og endurskoðun.
Jafnréttisáætlun þessi skal kynnt íbúum sveitarfélagsins, stofnunum og starfsmönnum þeirra.
Áætlunina skal endurskoða eftir þörfum, ekki seinna en fjórum árum frá samþykkt hennar.
Samþykkt á 61. fundi sveitarstjórnar 02.02.2010.




