03.02.2010
Bókun sveitarstjórnar vegna synjunar aðalskipulagsbreytinga
61. fundi fram haldið þann 3. febrúar 2010 kl. 20:00
Eftirfarandi bókun gerð vegna bréfs umhverfisráðuneytis.
12. Ívar Pálsson lögfræðingur mætti á fundinn. Farið yfir bréf umhverfisráðuneytisins, vegna synjunar aðalskipulagsbreytinga vegna Hvamms og Holtavirkjana.
Samþykkt að senda umhverfisráðherra bréf vegna málsins.
Bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Áður en frekari ákvarðanir verða teknar í málinu, krefst sveitarstjórn Skeiða– og Gnúpverjahrepps svara við því af hálfu ríkisstjórnar Íslands, sem eigenda Landsvirkjunar, hvort stefna ríkisstjórnarinnar sé í samræmi við stefnu Landsvirkjunar um að virkja á umræddu svæði.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 21.45
Fundargerð í heild sinni hér




