Bókun vegna bréfs umhverfisráðherra
11. Bókun vegna ummæla umhverfisráðherra um sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps í bréfi dagsettu 29.01.2010.
Í bréfi umhverfisráðherra til sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá 29.01.2010 þar sem ráðherra synjar staðfestingar skipulagstillögu vegna Hvamms og Holtavirkjana er því haldið fram að sveitarstjórnarmenn, hafi persónulega þegið aukagreiðslur frá Landsvirkjun vegna funda í sambandi við skipulagsgerðina.” Þetta er rangt, sveitarstjórn hefur ekki þegið nein önnur laun né aðrar greiðslur en þær sem sveitarsjóður hefur greitt fyrir. Ummælin eru illa ígrunduð, byggð á óáreiðanlegum heimildum og ærumeiðandi. Sveitarstjórn hefur ætið haft að leiðarljósi að hvorki íbúar né landeigendur biðu skaða af framkvæmdum innan sveitarfélagsins.
Fundi frestað klukkan 14.10 til kl. 15.00 þann 3. febrúar 2010.
Fundargerðin er í heild sinni hér




