Yfirlýsing vegna ákvörðunar umhverfisráðherra
Yfirlýsing vegna ákvörðunar umhverfisráðherra, að hafna staðfestingu á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, vegna Holta og Hvammsvirkjana.
Með bréfi dagsettu þann, 29. janúar 2010, rúmum 14. mánuðum eftir að tillagan var send umverfisráðherra til afgreiðslu, hefur umhverfisráðherra hafnað að staðfesta tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, vegna Holta og Hvammsvirkjana.
Ákvörðun umhverfisráðherra byggir á því að sveitarstjórninni hafi verið óheimilt að lögum að endurkrefja Landsvirkjun um þann kostnað sem sveitarfélagið hefur sannanlega lagt út vegna skipulagsbreytingarinnar. Tekur ráðherra þessa ákvörðun þrátt fyrir að venjan hafi hingað til verið sú að Landsvirkjun hafi greitt slíkan kostnað. Þá er í frumvarpi til nýrra skipulagslaga, sem samið var á vegum umhverfisráðuneytisins, beinlínis gert ráð fyrir þessu fyrirkomulagi.
Sveitarfélagið fær nánast engin gjöld af mannvirkjum vegna framkvæmdarinnar og ekki er hægt að sækja um viðbótarframlag úr skipulagssjóði vegna slíkra breytinga. Niðurstaða ráðherrans leiðir til þess að íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps þurfa að bera allan kostnað af breytingum sem eingöngu eru gerðar vegna hagsmuna ríkisins sjálfs þ.e. Landsvirkjunar.
Auk framangreinds verður að átelja málsmeðferð umhverfisráðuneytisins. Málið hefur verið 14 mánuði í meðförum ráðuneytisins en ekkert afsakar þann mikla drátt. Þá er afgreiðsla málsins ámælisverð fyrir þær sakir að ráðherrann leggur ekkert efnislegt mat á það hvort endurgreiðsla hins útlagða kostnaðar hafi raunverulega haft áhrif á þá ákvörðun sveitarstjórnar að samþykkja breytinguna. Það eitt að nú hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að óheimilt sé að endurkrefja um slíkan kostnað leiðir ekki sjálfkrafa til ógildingar ákvörðunarinnar. Engin tilraun er gerð til að meta þetta af hálfu ráðherra. Augljóst má vera að endurgreiðsla á útlögðum kostnaði getur ekki haft áhrif á vilja sveitarstjórnarmanna enda hagnast þeir hvorki persónulega né sveitarfélagið á ákvörðuninni.
Vegna ummæla í bréfi ráðherra um að sveitarstjórnarmenn hafi fengið aukagreiðslur frá Landsvirkjun vegna funda skal árétta að sú fullyrðing er ósönn. Sveitarstjórnarmenn hafa engar greiðslur fengið frá Landsvirkjun.
Auk framangreinds verður að telja að ráðherrann hefði átt að huga betur að eigin hæfi til að afgreiða málið þar sem einn athugasemdaaðila, sem jafnramt var fyrirsvarsvarsmaður annarra athugasemdaaðila sem voru á móti breytingunni, er það samstarfsmaður og samflokksmaður ráðherrans, þingmaðurinn, Atli Gíslason.
Árnes, 1. febrúar 2010.
Gunnar Örn Marteinsson, oddviti




