486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
26.10.2009

Bókamarkaður - Safnahelgi á Suðurlandi

Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á fjölbreytta menningardagskrá helgina 5. – 8. nóvember 2009.

Laugardaginn 7. nóvember frá kl. 13:00 -17:00 verður bókamarkaður á gömlum og nýlegum bókum, í Bókasafninu Brautarholti.

Bækurnar verða á mjög góðu verði og fólk er vinsamlegast beðið að greiða með reiðufé ef það sér eitthvað bitastætt því erfitt er um vik að taka við kortum.   það verður heitt á könnunni og góð stemmning.

 

Yfirskrift menningardagskrárinnar verður Safnahelgi á Suðurlandi með undirtitlinum "matur og menning"  úr héraði því auk hins sögulega og menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar