486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
09.10.2009

Hugsum áður en við hendum - Flokkunarreglur

  • 1
  • 2

Flokkarinn.is  segir þér flest um flokkun sorps en nokkur aðalatriði eru eftirfarandi:

 

GRÆNA TUNNAN!     Endurvinnanlegur úrgangur.

 DAGBLÖÐ, TÍMARIT , BÆKLINGAR, SKRIFSTOFUPAPPÍR og

BYLGJUPAPPI   skal fara   beint í tunnuna!

 

 FERNUR OG SLÉTTUR PAPPI ( umbúðir utan af morgunkorni, ýmsum skyndiréttum , kexi, þvottaefni, snyrtivörum og óteljandi öðrum vörum) skal fara  í glærum poka!

 Fernur skal skola og umbúðir eiga að vera án matarleifa!

 

MÁLMHLUTIR.   (niðursuðudósir, álpappír, málmur utan af sprittkertum, málmlok af krukkum o.fl.)    skal fara saman í glærum poka í grænu tunnuna!

 Dósir skulu skolast og umbúðir eiga að vera  án matarleifa!  

 

PLASTUMBÚÐIR.    ( s.s. sjampóbrúsar, tómatflöskur, ýmsir plastbakkar undan matvörum, plastpokar, plastílát undan mjólkurdrykkjum , plastílát undan hreinsiefnum o.fl. ) skal fara saman í glærum poka í grænu tunnuna!

 Allar plastumbúðir sem hafa merkingarnar  PET- HDPE - V (PVC) - LDPE - PP - PS  má setja í grænu tunnuna.

Frauðplast, gler, ösku  (gráa tunna) og rafhlöður  (næstu bensínstöð)EKKI  setja  í grænu tunnuna!

Græna tunnan verður losuð dagana 24. og 25. nóvember á þessu ári.

 

 BRÚNA TUNNAN.  Lífrænn úrgangur.

Það er niðurbrjótanlegur úrgangur af örverum t.d. matarleifar, hýði af grænmeti og ávöxtum, kaffi/kaffifilter, tepokar og eggjaskurn.

Þetta skal fara saman í maíspokanum sem fylgdi með ofan í litlu grænu fötunni sem hentugt er að hafa í eldhúsinu og síðan eru pokarnir með innihaldinu settir  í brúnu tunnunni! 

Íslenska Gámfélagið kemur og tekur brúnu tununa einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, 29. október ,  26. nóvember  

og 22. desember  á þessu ári.

 

 GRÁA TUNNAN.   Óendurvinnanlegt sorp,  sem ekki er hægt að flokka  í skilgreindan endurvinnslufarveg.

S.s. gler, bleiur, aska, umbúðir af blönduðu hráefni t.d. plastumbúðir með álfilmu  og  stór bein s.s. af lambalæri,  nauti og  svíni,  umbúðir sem ekki er hægt að hreinsa.

 Gráa tunnan er losuð einu sinni í mánuði.  (Sjá aðra losun á "sorpdagatal" hér til vinstri á síðunni  www.skeidgnup.is

 

RÚLLUBAGGAPLAST. 

Gott er að hafa eftifarandi í huga við frágang á því:

 Hristið hey úr plastinu.

 Plastið skal vera laust við aðskotahluti s.s. baggabönd, snæri, net og annað slíkt.

 Þjappið plastinu saman í viðráðanlegar einingar.

 Geymið plastið á þurrum, skjólgóðum, stað þar til Íslenska Gámafélagið nær í það. 

þeir koma 22. og 23. október næst og svo 17. og 18. desember.

 

Blár reitur á sorpdagatali =  Heyrúlluplast tekið.

 

 

Flokkarinn.is segir þér flest um flokkunina!

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar