Hugsum áður en við hendum
þann 23. júní s.l. var undirritaður samningur milli Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Íslenska Gámafélagsins um flokkun sorps og moltugerð í hreppnum.
Sem þátttakandi í "Staðadagskrá 21" skipar sveitarfélagið sér í hóp þeirra sveitarfélaga hér á landi sem mótað hafa sér áætlun og framtíðarsýn um sjálfbæra þróun.
Það er stefna sveitarfélagsins að minnka úrgangsmyndun í sveitarfélaginu og draga úr sorpi sem fer til urðunar.
Fordæmi eru fyrir því að með því að flokka sorp sem fellur til á heimilum er unnt að minnka það magn sem sent er til urðunar um 60 - 80%!
Með þriggja tunnu kerfi gefst íbúum sveitarfélagsins kostur á að flokka sitt sorp í þrjár mismunandi tunnur sem verða við hvert heimili.
Íslenska Gámafélagið mun sjá um framkvæmd verkefnisins og fræðslu til íbúa. Hvert heimili verður heimsótt og framkvæmdin kynnt.
Oddviti sagði á kynningarfundi í Brautarholti að markmið sveitarsjórnar væri að einfalda kerfið og gera reglurnar skýrari, þannig að allir íbúar og sumarhúsaeigendur sitji við sama borð með tilliti til þess hvaða gjöld þeir greiða til sveitarfélagsins vegna málaflokksins.
Meðfylgjandi er - Sorpdagatal 2009!
Reitir merktir - GRÁIR = Losun: grá tunna
Reitir merktir - BRÚNIR = Losun: brún tunna
Reitir merktir - GRÆNIR = Losun: græn tunna
Reitir merktir - BLÁIR = Heyrúlluplast tekið
Flokkun sorps er forsenda endurnýtingar og endurvinnslu!




