Breytingar á Sorphirðu
Þann 1. október verða miklar breytingar á formi sorphirðu í sveitarfélaginu. Breytingarnar verða á þann veg að nú þarf að flokka sorpið og ganga frá því á þann hátt að það sé sem mest nýtanlegt til endurvinnslu.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur gert samkomulag við Íslenska Gámafélagið um undirbúning og aðstoð við að koma þessu fyrirkomulagi á koppinn og í framhaldinu um sorphirðuna í sveitarfélaginu.
ÁSTÆÐUR BREYTINGA
Ástæður þessara breytinga er fyrst og fremst þær að nú verðum við að hugsa betur um meðferð okkar á því sorpi sem við látum frá okkur, framtíðarinnar vegna.
Önnur mikilvæg ástæða þess að ráðist er í þessar breytingar núna er sú staðreynd að núverandi urðunarstaður, Kirkjuferjuhjáleiga í Ölfusi, lokar 1.desember og frá þeim tímapunkti þarf að keyra allt sorp sem þarf að urða til höfuðborgarsvæðisins. Með lokun þessa urðunarstaðar eykst sorphirðukostnaður sveitarfélagsins umtalsvert bæði vegna þess að urðunargjald á hvert kg er fjórfalt hærra á höfuðborgarsvæðinu og vegna aukins flutningskostnaðar. Þess vegna er það okkur mjög mikilvægt að minnka magn þess sorps sem þarf að urða.
FRAMKVÆMD BREYTINGA
Öll heimili fá þriggja tunnu kerfi, svokallaðar Grænu, Brúnu og Gráu tunnur. Einnig fá öll heimili ítarlegan bækling um hvernig eigi að flokka – hvað tilheyri hverju auk sorphirðudagatals. Í bæklingnum koma einnig fram ýmsar fleiri gagnlegar upplýsingar eins og t.d. hvernig og hvað er hægt að búa til úr endurvinnanlegu sorpi, hvers konar atvinnu það skapar og vísun á meiri fróðleik sem hægt er að sækja sér varðandi þessi mál.
Á næstu dögum munu aðilar frá Íslenska Gámafélaginu koma í heimsókn á öll heimili í sveitarfélaginu og aðstoða okkur við að koma okkur af stað. Þar sem þetta eru miklar breytingar fyrir marga er nauðsynlegt að nýta tækifærið þegar þeir koma í heimsókn og spyrja þá spjörunum úr hvað varðar flokkunina, aðferðir, frágang, skipulagið ofl. þess háttar.
Þann 23. september síðastliðinn var haldin íbúafundur um þetta mál. Þar héldu aðilar frá Íslenska Gámafélaginu greinagóðan og gagnlegan fyrirlestur um flestallt sem viðkemur þessari flokkun.
Þetta dreifibréf kemur enganvegin í staðin fyrir þann fyrirlestur fyrir þá sem ekki sáu sér fært að mæta – en hefur fremur þann tilgang að minna á það sem er í vændum. Á heimasíðu sveitarfélagsins verður sorphirðudagatalið aðgengilegt auk annarra nauðsynlegra upplýsinga.
Að lokum óskar Umhverfisnefnd eftir ábendingum um efni og fróðleik sem íbúar mundu vilja sjá á heimasíðu sveitarfélagsins eða í fréttabréfinu.
Með bestu umhverfiskveðju
Umhverfisnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps




