486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
27.01.2012

Námskeið um vöruþróun í handverki og minjagripaframleiðslu

Námskeiðið er styrkt af Menningarráði Suðurlands og er því á afar hagstæðu verði fyrir þátttakendur.

 

 Námskeið um vöruþróun í handverki og minjagripaframleiðslu

 

 

 Kennari: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá NMÍ

  Staður: Fræðslunetið, Hvolsvelli

  Tími: Laugardagar og sunnudagar 18. og 19. febrúar og 10.   og 11. mars kl. 10-16

  Verð: 12.000

 

 Frá hugmynd: 

1. Undirbúningur að þróun nýrrar vöru

2. Hugmyndavinna

3. Þarfagreining

4. Tæknileg atriði

5. Fagurfræði

 

 Til vöru:

 1. Markhópur og markaðir

 2. Verðlagning

3. Kröfur til vöru

4. Innihald

 5. Umbúðir, merkingar o. fl.

 

 Innritun og allar nánari upplýsingar hjá Fræðsluneti Suðurlands Sími 852 2155 ; 480 8155 og 483 5189 eða hjá steinunnosk@fraedslunet

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar