Brautargengi á Selfossi
Námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum
í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki
Þátttakendur á námskeiði:
skrifa viðskiptaáætlun
kynnast grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja
öðlast hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem koma
að fyrirtækjarekstri, s.s. stefnumótun, markaðsmálum, ármálum og stjórnun
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnavinnu og
persónulegri handleiðslu og hentar jafnt konum sem eru
að hefja rekstur og konum sem reka nú þegar fyrirtæki.
Umsóknarfrestur er til 3. febrúar nk.
Áætlað er að kennsla hefjist 9. febrúar.
Nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands, www.nmi.is/impra eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra í síma 522 9434, selma@nmi.is.
Það að búa til viðskiptaáætlun og undirbúa stofnun
fyrirtækis opnaði mér leiðir sem mér voru
áður ófærar. Námskeiðið í heild hefur
gjörbreytt aðstæðum mínum og mér hefur tekist að koma miklu í
framkvæmd sem áður höfðu aðeins verið fjarlægir draumar.
Ég hef þegar stofnað eitt fyrirtæki og annað er í burðarliðnum. Þótt maður komi síður en svo fullnuminn af námskeiðinu
þá hefur maður tengsl og bakland í gegnum þátttakendur og leiðbeinendur sem eru ósmissandi og koma manni til góða að
loknu námskeiði.
Kristín Aðalheiður Símonardóttir
Vegamót gisting




