486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
04.01.2012

Sorphirðudagatal 2012

  • 1
  • 2

Sorhirðudagatal 2012 sýnilegt hér

Með næsta fréttabréfi, 16. janúar, mun dagatalið komast inn á hvert heimili í sveitinni og nú getum við sett allar umbúðir úr plasti, hvort sem þær eru merktar eða ekki og einnig þær sem eru samsettar úr áli og plasti

t.d. kaffipokar, snakkpokar ofl.  í grænu tunnuna!  

Hvort sem um er að ræða mjúkt eða hart plast má það fara í grænu tunnuna   en eftir sem áður er nauðsynlegt að skola burt allar matarleifar. 

Þetta verður alltaf einfaldara og betra og skulum við því sækja í okkur veðrið, enn frekar, í flokkuninni á nýju ári.

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar