02.01.2012
Fjallaskáli til leigu.
Til leigu er 268,6 fm fjallaskáli í Hólaskógi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Fjallaskálinn er byggður úr timbri, á tveimur hæðum með verönd að framan.
Efri hæð telur m.a. eldunaraðstöðu þar sem er vaskur og gaseldavél, svefnpokapláss í tveimur stórum rýmum, í hvoru rými eru níu kojur ca 90 cm breiðar og flatsæng fyrir 14 manns, salerni og rúmgott herbergi t.d. fyrir staðarhaldara. Loft og veggir eru panelklæddir, timburgólf m/spónarplötum er á milli hæða, timburstigi er milli hæða.
Neðri hæð er panelklædd og gólf flísalögð. Á neðri hæð er forstofa m/hengi, ræstikompa, stór og rúmgóður salur sem er í senn borðsalur og gistirými þar er svefnpokapláss og borðkrókur m/borðum og stólum fyrir um 24 manns. Opið er á milli eldhúss og salar.
Eldhús er ágætlega búið og er þar m.a. gaseldavél. Salerni fyrir karla og konur, tvær sturtur. Salerni og sturtur eru flísalögð í hólf og gólf. 380 lítra hitakútur, rafmagnskynding. Samtals gistipláss fyrir 85 manns.
Einnig fylgir með í leigunni aðstaða fyrir hestamenn sem gista í skálanum.
Óskað er eftir tilboðum í leigu á skálanum fyrir 30. janúar 2012.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Skeiða-og Gnúpverjahrepps
í síma 486-6014.




