Gjaldskrá Skeiða-og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2012
Tillaga að gjaldskrá Skeiða-og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2012 samþykkt á 24. fundi sveitarstjórnar þann 6.12.2011.
Vatnsgjald
Gjaldskrá vatnsveitu fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði, verður óbreytt frá þeirri gjaldskrá sem í gildi er fyrir árið 2011.
Seyrulosunargjald
Árlegt gjald fyrir losun á seyru samkvæmt samþykkt nr. 149/2004 um hreinsun fráveituvatns og reglubundna losun, vinnslu eða förgun seyru verður 6.400.- kr. á rotþró.
Sorpgjöld
Sorpgjöld er lögð á samkvæmt samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 8. des 2005.
Samþykktin var staðfest á 84 fundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands þann 14. mars 2006, og staðfest af Umhverfisráðuneyti þann 5. janúar 2007.
Sorpgjöld árið 2012 verða eftirfarandi:
Sorphirðugjald 240 L 11.550.- kr.
Sorphirðugjald 660 L 34.000.- kr.
Sorphirðugjald 1.100 L 56.250.- kr.
Sorpeyðingargjald íbúðarhús 11.700.- kr.
Sorpeyðingargjald sumarhús 8.750.- kr.
Sorpeyðingargjald atvinnu 32.000.- kr.
Holræsagjald
Holræsagjald á þeim stöðum þar sem sveitarfélagið er með holræsakerfi, gjaldið nemur 0.15% af fasteignamati.
Lóðaleigugjöld
Lóðaleigugjöld innheimtast eftir lóðaleigusamningum.
Gjaldskrá grunnskóla frá 1. janúar 2012
Skólamötuneytisgjöld
Morgunhressing kr. 69,-
Hádegisverður kr. 255,-
Skólavistun
Skólavistun klst. kr. 210,-
Aukavistun klst. kr. 210,-
Náðarkorter 15 mín. Kr. 500,-
Gjaldskrá leikskóla frá 1. janúar 2012
Ein stök morgunhressing kr. 64,-
Einn stakur hádegisverður kr. 184,-
Ein stök síðdegishressing kr. 77,-
Klukkustundargjald kr. 123,-
klst.gjald 75% kr. 92,-
klst. gjald 50% kr. 61,-
Klukkustundargjald á öðrum tímum en frá kl.08 til kl.16:00 kr. 250,-
Gjald fyrir aukatíma, hverjar byrjaðar 15.mínútur kr. 500,-
Tillaga að upphæð tómstundastyrks fyrir árið 2012.
Sveitarstjórn Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára til og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50.000.- kr. á árinu 2012 til að stunda íþrótta, æskulýðs eða menningarstarf.
Með umsókn þarf að fylgja frumrit kvittunar um greiðslu frá aðila sem uppfyllir skilyrði að um viðurkennda starfsemi sé að ræða og fagaðilar sjái um þjálfun og /eða menntun.




