486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
07.12.2011

Íbúafundur í Brautarholti 12. desember kl.20:30

Íbúafundur verður haldinn í Brautarholti,  kl. 20:30 
mánudagskvöldið 12. desember 

Farið verður yfir þá vinnu sem unnin hefur verið á vegum fyrirtækisins Fjarska við könnun á kostnaði vegna lagningar ljósleiðara í sveitarfélaginu.

Munu þeir sem unnu úttektina mæta á fundinn og skýra niðurstöðuna.

Einnig verður farið yfir önnur mál í sveitarfélaginu s.s. gerð fjárhagsáætlunar ofl.
         

 Vonumst til þess að sjá sem flesta og  allir eru velkomnir!

      Jólakveðja.

    Hreppsnefnd.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar