486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
21.12.2011

FRÍTT Í SUND var á aðfangadag fyrir alla!

Skeiðalaug  var opin á aðfangadag  kl. 12 -16.

 

Sundgestum var boðið uppá kaffi-safa og piparkökur. 

Nokkrir nýttu sér þetta skemmtilega tilboð og opið  verður í Skeiðalaug á þriðjudag 27. desember og fimmtudag 29. des. frá kl. 17-21.

Notið það kæru sveitungnar og gestir.

Gleðilegt nýtt ár!


                               

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar