Félagsheimilið í Brautarholti og leikskólinn Leikholt.
Félagsheimilið í Brautarholti verður alltaf að panta með góðum fyrirvara sé sótt eftir að hafa skemmtun eða samkomu af einhverju tagi í húsinu.
Öll starfsemi í húsinu, utan leikskólans, þarf að fara í gegnum umsjónarmann sem núna er Steinunn Á. Einarsdóttir. Leigjendur fá lykla að húsinu hjá umsjónarmanni og enginn starfsmaður leikskólans hefur leyfi til að opna húsið á öðrum tíma en leikskólatíma – nema sérstaklega sé um það samið.
Umsjónarmaður hefur m.a. það hlutverk að fara yfir þær skyldur sem tilheyra leigjendum, kenna á brunakerfi og ýmislegt fleira. Uppröðun á stólum (og samantekt) og fleira því tengt þarf að panta með a.m.k. viku fyrirvara. Leigjendur þurfa ávallt að vera meðvirk í því að ganga frá eftir samkomu, eins og að týna saman allt rusl, þrífa borð, sópa og ganga alveg frá og þrífa í því eldhúsi sem leigt er út.
Umsjónaraðili sér um nánari þrif eins og að skúra.
Leikskóli er starfandi í húsinu alla virka daga ársins nema 5 vikur í sumarfríi. Litlu eins árs börnin okkar skríða í gólfinu og þau sem eldri eru, eru hér á sokkaleistunum.
Við verðum því að gera skýra kröfu þeirra vegna að gólfið sé hreint og húsið tilbúið í þá starfsemi sem börnin þurfa.
Leigjendur þurfa eins og áður sagði að vera virkir og tilbúnir til að hjálpast að. Það er smá handleggur að græja allt fyrir samkomu og ekki síður að taka til og þrífa.
Síðastliðið aðventukvöld var afar falleg skemmtun.
Það sem við hins vegar lærum af þessari samkomu og varðar þessi praktísku atriði er:
• Húsið þarf að panta og það með fyrirvara.
• Leigjendur annað hvort sjá um að raða upp stólum og borðum og þá að taka einnig saman eða geta óskað eftir því við umsjónarmann. Slíkar óskir þurfa alltaf að berast einnig með góðum fyrirvara.
• Leigjendur eiga að þrífa borð, taka saman allt rusl, sópa gólf og þrífa vel það eldhús sem hefur verið notað.
• Allt uppvask og frágangur á leirtauji er á höndum leigjenda.
• Allir samkomugestir þurfa að vera samhenntir og hjálpsamir hvað varðar góða umgengni.
Þegar fólk pantar húsið fær það upplýsingar um allt ofangreint og margt fleira hjá umsjónarmanni en það er ágætt að allir sveitungar þekki og viti hvernig hlutirnir ganga fyrir sig.
Ég vil einnig að sett verði sú regla að spretthlaup og eltingaleikir barnanna séu ekki við hæfi á samkomum sem þessum.
Um þetta verða allir að vera sammála.
Ég legg mikla áherslu á gott og greiðvikið samstarf allra aðila!
Með góðri kveðju
Vilborg M. Ástráðsdóttir, leikskólastjóri.




