Útsvarsprósenta og álagning fasteignagjalda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2012
Á 23. sveitarstjórnarfundi þann 15. nóvember s.l. var tillaga að útsvarsprósentu og álagningu fasteignagjalda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2012 tekin fyrir og samþykkt að lækka fasteignaskattshlutfall í A flokki úr 0,60% af heildar fasteignamati í 0,50 % af heildar fasteignamati.
a. Útsvar
Útsvar fyrir árið 2012 verður 14,48%
b. Fasteignagjöld
A- flokkur.
Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis eins og þær eru skilgreindar í 3.gr. í lögum nr.4/1995 verður 0,50% af heildar fasteignamati.
B- flokkur.
Fasteignaskattur af opinberum byggingum eins og þær eru skilgreindar í 3. gr. í lögum nr.4/1995 verður 1,32% af heildar fasteignamati.
C- flokkur.
Fasteignaskattur atvinnuhúsnæðis og öðrum eins og þær eru skilgreindar í 3. gr. í lögum nr. 4/1995 verður 1,65% af heildar fasteignamati.
Afsláttur af fasteignaskatti fer eftir samþykktum sveitarstjórnar frá 7. febrúar 2006. Samkvæmt 3. gr. þeirrar samþykktar geta þeir sem eru eldri en 67.ára, og þeir sem eru 75% öryrkjar eða meira sótt um afslátt á fasteignagjöldum þeirrar íbúðar sem þeir búa í og ekki er nýtt af öðrum, tekjuviðmiðið er í lið 7.
Gjalddagar fasteignaskatts eru í lið 8.
Lagt er til að afsláttur á fasteignagjöldum taki breytingum frá árinu 2011 í samræmi við breytingu á vísutölu neysluverð á tímabilinu 1. des 2011 til 1. des. 2012.
Tillagan var samþykkt af sveitarstjórn.




