Laufblöð og plastumbúðir!
Laufblöð eru vissulega lífræn og ættu að eiga erindi í moltuna en Íslenska gámafélagið óskar eindregið eftir því að laufblöð séu ekki sett í brúnu tunnuna því þau eru garðaúrgangur og jarðgerðarvélin getur ekki torgað svo miklu af garðaúrgangi ef þau færu með. Laufblöð eru mjög fljót að brotna niður og það getur verið ágætt að dreifa þeim yfir t.d. blóma-, trjá-, eða matjurtabeð. þegar þau síðan brotna niður verða þau að næringu sem fer í jarðveginn og því hagstætt fyrir plöntur sem þar vaxa.
það hafa verið miklar breytingar varðandi flokkun og endurvinnslu á plasti undanfarið, enda um mjög flókin flokk að ræða.
Nú er það þannig að allar umbúðir úr plasti, hvort sem þær eru merktar eða ekki, einnig þær sem eru samsettar úr áli og plasti (kaffipokar, snakkpokar ofl.) mega fara í grænu tunnuna! Hvort sem mjúkt eða hart plast er að ræða, en eftir sem áður er nauðsynlegt að skola burt allar matarleifar.
Form. Umhverfisnefndar




