Reglur um þátttökukostnað sveitarfélagsins á kaupum námsmanna á strætókortum
Reglur um þátttökukostnað sveitarfélagsins á kaupum námsmanna á strætókortum.
1. gr.
Námsmenn sem skráðir eru til náms í framhaldsskóla eða háskóla á höfuðborgarsvæðinu og eru með lögheimili í Skeiða-og Gnúpverjahreppi eiga þess kost að fá styrk til kaupa á námsmannakorti allt að 15.500,- kr. sem veitir aðgang að almenningsvögnum Strætó bs. á gjaldsvæði 1.
Framhaldsskólinn þarf að útskrifa nemendur til framhaldsnám á háskólastigi eða námið vera lánshæft hjá LÍN minnst 20 ECTS.
Námsmenn í símenntunarmiðstöðvum og framhalds- og listaskólum þar sem nemendur eru ekki lánshæfir hjá LÍN eiga ekki kost á nemakorti. Nemendur í fjarnámi eiga ekki kost á námsmannakorti. Nemendur í grunnskóla, sem taka námskeið eða námsgrein(ar) í framhaldsskóla, eiga ekki kost á námsmannakorti.
2.gr.
Verð á námsmannakorti sem gildir í strætó fyrir skólaárið 2011 – 2012 er 15.500,- . Styrkur til kaupa á námsmannakorti fyrir hvora önn fyrir sig er kr. 7.750,-
Með umsókn þarf að fylgja frumrit kvittunar fyrir kaupum á námsmannakortinu, og staðfesting skóla um nám umsækjanda.
Reglurnar gilda fyrir skólaárið 2011-2012.
Samþykkt á 21. sveitarstjórnarfundi Skeiða- og Gnúpverjahrepps þann 04.10.2011
Gunnar Örn Marteinsson
Oddviti




