Velferðarþjónusta Árnesþings
Uppsveitir Árnessýslu, Flóahreppur, Hveragerði og Ölfus hafa sameinast um að reka sameiginlega félagsþjónustu sem ber nafnið Velferðarþjónusta Árnesþings.
Velferðarþjónustan verður með þrjár starfsstöðvar og einn sameiginlegan félagsmálastjóra og eina velferðarnefnd sem fer með málefni félagsþjónustu og barnaverndar..
Félagsmálastjóri er María Kristjánsdóttir og er starfsstöð hennar í Hveragerði sími 483-4000 eða maria@hveragerdi.is. María mun vera með fasta viðveru á hverri starfsstöð og verður sá tími auglýstur síðar.
Ráðnir hafa verið félagsráðgjafar/ráðgjafar á hverja starfstöð þ.e. í Ölfusi, Hveragerði og Laugarási.
Félagsráðgjafi og ráðgjafar stöðvanna eru:
Eyrún Hafþórsdóttir, ráðgjafi Ölfusi sími 480-3800
Halla Dröfn Jónsdóttr, ráðgjafi Hveragerði sími 483-4000
Nanna Mjöll Atladóttir, félagsráðgjafi Laugarási sími 480-5300
Í Velferðarnefnd Árnesþings sitja:
Aðalmenn:
Unnur Þormóðsdóttir, formaður
Harpa Dís Harðardóttir, varaformaður
Jón Páll Kristófersson,
Helena Helgadóttir
Alma Anna Oddsdóttir
Varamenn:
Harpa Hilmarsdóttir
Íris Ellertsdóttir
Birkir Sveinsson
Bjarney Vignisdóttir
Hörður Óli Guðmundsson




