Tafir geta orðið á umferð um veg nr. 32, Þjórsárdalsveg.
Fimmtudaginn 15. sept. er fjársafn af Gnúpverjaafrétti rekið fram Skeiða– og Gnúpverjahrepp í náttstað í Fossnesi og um miðjan dag geta orðið tafir á umferð, um veg nr. 32, Þjórsárdalsveg, þar sem ekki er hægt að reka féð annars staðar.
Hægt er þó að sæta lagi með að komast fram hjá frá kl. ca 15:30 - 18:30 og venjulega er féð komið í girðingu við Fossnes um kl. 20:30.
Daginn eftir þann 16. sept. er féð rekið áfram veg nr. 32 að Skaftholtsréttum þar sem því er réttað, kl.11:00 en hægt er þá að nota hjáleið fyrir bílaumferð um gamla þjóðveginn þ.e. Löngudælarholt eins og kallað er.
Flóa -og Skeiðamenn reka sitt fé einnig um veg nr. 32, Þjórsárdalsveg, föstudaginn 16. sept. og geta þá orðið tafir á bílaumferð, sérstaklega á Sandlækjarmýrinni seinnipart dagsins því þar er mjög þröngt að reka féð.
Laugardaginn 17. sept. geta enn orðið smávægilegar tafir á Skeiðaveginum þegar bændur reka fé sitt í heimahaga úr Reykjaréttum en þær byrja kl. 09:00.




