http://www.thjorsarstofa.is
Þjórsárstofa var opnuð við hátíðlega athöfn þann 27. maí 2011. Markmið Þjórsárstofu er að miðla fróðleik og upplýsingum um landið og náttúruna, fólkið og söguna og þá þjónustu sem í boði er í sveitarfélaginu með Þjórsá sjálfa sem meginþema. Við það tækifæri var einnig tekin í notkun heimasíða þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um sögu sveitarinnar, náttúru og fuglalíf hennar ásamt afþreyingu, þjónustu og áhugaverðum stöðum og annarrri þjónustu er boðið er upp á í sveitarfélaginu. Slóð heimasíðu: http://www.thjorsarstofa.is/ Vísir að byggðasafni er í Þjórsarstofu og tengjast munirnir sem þar eru til sýnis sveitinni hér, þar gefur að líta t.d. göngustaf Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi og kleinujárn Guðbjargar í Hlíð svo eitthvað sé nefnt og þar er einnig minjagripasala.
Þjórsárstofa er samstarfsverkefni Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.




