486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
03.09.2011

Kostnaður kannaður vegna lagningar ljósleiðara um sveitarfélagið.

 

Eins og sagt er frá í Sunnlenska fréttablaðinu 1. sept. s.l. er sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að láta kanna kostnað við lagningu ljósleiðara  á öll heimili, fyrirtæki og hugsanlega sumarhús  í sveitarfélaginu. Nauðsynlegur þáttur í þeirri könnun er að finna hentugar lagnaleiðir og fá leyfi landeigenda til að leggja strenginn í jörð.

Á næstu vikum verða fulltrúar Fjarska sem sjá um hönnunina á strengnum, á ferðinni, til að skoða lagnaleiðir og annað tengt málinu, jafnframt verður í leiðinni haft samband við hvern og einn landeiganda sem málið varðar og það kynnt fyrir viðkomandi.


Rétt er að taka fram að ekki verður tekin endanleg ákvörðun um hvort ráðist verður í framkvæmdina fyrr en þessari vinnu er lokið.

Þetta er mikið framfaraskref fyrir íbúa í sveitarfélaginu ef af verður og mun geta veitt  íbúum tækifæri umfram það sem almennt þekkist á landsbyggðinni. Til stendur að bjóða íbúum upp á ókeypis tengingu við ljósleiðarann og verðskrá fyrir notkun  verður í hóf stillt.


Til þess að þetta metnaðarfulla takmark náist er nauðsynlegt að gott samstarf verði milli þeirra sem hanna lagnaleiðir og fleira sem
viðkemur framkvæmdinni annars vegar og landeigenda hins vegar og er fólk hvatt til að hafa samband við Guðmund Daníelsson í síma 863-4106 ef einhverjar spurningar vakna því hann sér um málið fyrir hönd Fjarska.  Einnig er fólki velkomið að hafa samband við undirritaðan vegna þessa.

Bréf voru send á öll heimili sveitarfélagsins og til sumarhúsaeigenda í sumar  til upplýsingar og undirbúnings.

Eins og fram kemur í Sunnlenska fréttablaðinu er okkar sveitarfélag ekki fyrst á landinu að ráðast í slíka framkvæmd en Öræfasveit og Blöndusveit hafa gert þetta áður.

Vitað er að mikil samstaða ríkti í Öræfasveitinni um málið og lögðu bændur sjálfir til mikla vinnu við verkefnið.

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar