24.06.2011
Sólarlag á Jónsmessunótt
Þessi mynd var tekin þann 23. júní og sýnir sólina setjast á bak við Hamraholtið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Hlíðarkistan sést vel til vinstri á mynd. En sólargangur er langur um þessar mundir og þaðan sem myndin er tekin, sem er litlu sunnar en Skaftholtsréttir er sólarlag um kl. 23:20 þegar sól er lengst á lofti við sumarsólstöður.
Mynd nr. 2 var líka tekin á svipuðum slóðum en við aðrar aðstæður.
Þar er verið að gæða sér á saltsteini í sátt og samlyndi.




