Íbúafundur í Árnesi um könnun á lagninu ljósleiðara
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vinnur nú að könnun á möguleikum á að leggja ljósleiðara um allt sveitarfélagið.
Áætlunin gerir ráð fyrir að ljósleiðarinn verði lagður á öll heimili í sveitarfélaginu, íbúum að kostnaðarlausu og þjónustugjöldin og sú þjónusta sem í boði verður verði sambærileg við það sem best gerist á þessu sviði.
Þessi áform eru talsvert metnaðarfull en jafnframt kostnaðarsöm en sú mynd sem nú liggur fyrir varðandi framkvæmdina er þannig að ekki mun fjárhag sveitarfélagsins verða teflt í voða.
Það er nauðsynlegt að íbúar verði, frá upphafi, vel upplýstir þannig að sem flestir viti um hvað málið snýst.
Til þess að kynna áformin er boðað til almenns íbúafundar í Árnesi fimmtudaginn 23. júní kl.20:30.
Á fundinum munu fulltrúar Fjarska kynna tæknihliðar málsins og fulltrúar sveitarfélagsins munu fara yfir fjárhagslega þáttinn.
Íbúar eru hvattir til þess að koma og fræðast.
Oddviti




