486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
08.06.2011

Gjáskógar

Áhugafólk, í samvinnu við Fornleifavernd, hefur merkt fornminjar í Þjórsárdal sl. þrjú ár með því að setja niður skilti sem upplýsir ferðafólk um sögu viðkomandi bæjarrústa.

Nýlega var farið með skilti að rústum bæjarins Gjáskógar. Bærinn stóð fyrir innan Gjána, og hefur verið í gömlum fræðum kallaður ,,kotbýli,, frá Stöng. Það má greina rústir af Gjáskógum,  og  rústir fjóssins austan við bæinn sjást mjög vel.

Stöng er 200 m yfir sjávarmáli, en Gjáskógar 300 m. Með þessum áfanga hafa Gjáskógar, Stöng, Skeljastaðir, Sámstaðir, Áslákstunga-fremmri og Sandártunga, (Sanda-tunga) verið merkt. Fleiri merkingar bíða betri tíma.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar