Hreinsunarátak í sveitinni 20. maí—16. júní 2011.
Hreint og klárt! Hreinsunarátak í Skeiða– og Gnúpverjahreppi 20. maí—16. júní 2011.
Hvers vegna ?
Hrein og falleg ásýnd sveitarfélags er mikilvæg bæði fyrir íbúa og gesti því snyrtimennska er þáttur í vellíðan íbúa og jákvæðni þeirra gesta sem að garði ber.
Hreinsunarátak hefur oft verið fastur liður í vorverkum í gegnum tíðina og því efnum við til sérstaks átaks nú dagana 20. maí til 16. júní 2011.
Í samningi við Íslenska gámafélagið er tilgreind þátttaka þeirra í hreinsunarátaki og felst hún í góðu skipulagi við akstur og tæmingu ruslagáma.
Margar hendur vinna létt verk.
Hverjir ?
Með því að hreinsa til fyrir utan fasteignir; íbúðarhús útihús, bílskúra, verkstæði ofl..
Með því að hreinsa meðfram og í aðkeyrslum, bílastæðum, heimreiðum og landareignum.
Með því að laga grindverk, girðingar, stíga ofl. ef þörf og tök eru á.
Með því að mála, snyrta eða hreinsa það sem farið er að sjá á ofl. ef þörf og tök eru á.
Í boði er að fá ruslagáma endurgjaldslaust til að setja rusl í. Miðað er við að ruslagámurinn verði 1-2 daga hjá viðkomandi og lögð er áhersla á að hann verði vel nýttur. Starfsmenn áhaldahúss eru til aðstoðar við að meta hversu stóra gáma þurfi eða hvort hægt sé að samnýta með öðrum bæjum.
Hvar?
Á efra gámasvæði, ofan Árnes eru eftirfarandi flokkunarmöguleikar:
Timburgámur.
Spilliefnagámur.
Almennt rusl eða óflokkanlegt.
Járnagámur.
Plastgámur.
Á neðra gámasvæði við búnaðarfélagsskemmuna í Brautarholti eru eftirfarandi flokkunarmöguleikar:
Timburgámur.
Spilliefnagámur.
Almennt rusl eða óflokkanlegt.
Járnagámur.
Vinsamlegast athugið að nýta garðaúrgang til uppgræðslu eða til annarra gagnlegra verka, gámasvæðin geta ekki tekið á móti garðaúrgangi.
Starfsmenn áhaldahús, Ari og Björn, eru til leiðbeiningar um hvar og hvernig megi flokka það sem þarf að farga auk þess sem þeir veita allar nauðsynlegar upplýsingar um ruslagámana.
Símar áhaldahúss eru 486 6118 og 893 4426




