486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
27.05.2011

Formleg opnun Þjórsárstofu í Árnesi

  • 1
  • 2
  • 3

Þjórsárstofa var formlega opnuð föstudaginn 27. maí að viðstöddu fjölmenni.

Markmið Þjórsárstofu er að miðla fróðleik og upplýsingum um landið og náttúruna, fólkið og söguna og þá þjónustu sem í boði er í sveitarfélaginu með Þjórsá sjálfa sem meginþema.

Þjórsárstofa er  samstarfsverkefni  Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Iðnaðar- og ferðamálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir opnaði formelga stofuna með ávarpi og klippti á borða ásamt Rögnu Árnadóttur skrifstofustjóra Landsvirkjunar og Gunnari Erni Marteinssyni oddvita  Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Einnig opnaði ráðherra nýja heimasíðu Þjórsárstofu.

http://www.thjorsarstofa.is

Björn G. Björnsson sýningarhönnuður útskýrði fyrir gestum hvernig sýning Þjórsárstofu er uppbyggð en hún felst í 10 athyglisverðum stöðum í sveitarfélaginu sem eru nefndir lykilstaðir og eru settir fram á stórum veggspjöldum með myndum og textum í aðalandyri hússins og gefa þeir innsýn í sveitina.

Þá er ljósakort af svæðinu einkum fyrir yngri kynslóðina til þess átta sig á stöðum á Suðurlandi. Á hnappaborði eru 100 valmöguleikar um staði sem vísað er í á kortinu og kviknar ljós á þeim stað á kortinu sem þrýst er á.

Vísir er að minjasafni, hugsað sem minjar úr sveitinni  í samstarfi við Þjórsárskóla.

Einnig er margmiðlun um landið og náttúruna, fólkið og söguna og þjónustu og afþreyingu í sveitinni.

Seinni hluti sýningarinnar verður settur upp að ári, í aðalsal, en sá hluti er hugsaður sem upplifun með Þjórsá, frá upptökum til ósa, á mynd og hljóðrænan hátt.

Við athöfnina sungu félagar úr Ólafsvalla og Stóra-Núpskirkjukór og söng Sigurður Loftsson einsöng með kórnum.

Forsýning var á kvikmynd um Þjórsárdal eftir Ara Trausta Guðmundsson og Valdimar Leifsson sem sýnd verður í sjónvarpi RÚV í sumar.

Ragna Árnadóttir og Gunnar Örn Marteinsson tóku einnig til máls  og Geir Borg hjá Gagarín, margmiðlunarfyrirtæki lýsti margmiðluninni og heimasíðunni.

Þá bauð sveitarfélagið gestum upp á veitingar.

Margir aðilar hafa komið að verkefninu s.s.

Basalt arkitektar. Endurgerð á húsinu sjálfu.

Verkís. Lýsing og rafkerfi

Járnsmíði: Sigurður Kárason

Sýningarhönnun. Björn G. Björnsson

Textar og heimildamynd. Ari Trausti Guðmundsson

Margmiðlun. Gagarín

Ljósakort. Módelsmíði

Prentun mynda. Merking

Ljósmyndun. Jóhannes Long o.fl.

Kvikmyndun. Steingrímur Þórðarson, Valdimar Leifsson, Jón Þór Víglundsson o.fl

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar