486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
26.05.2011

Þjórsárskóli keppir í þriggja liða úrslitum í verkefni Landsbyggðarvina

Nemendur  Þjórsárskóla keppa í þriggja liða úrslitum í verkefni Landsbyggðarvina nú þann 30. maí n.k. en það er verkefni sem felst í  að þjálfa ungmenni við að verða meðvitaðri nærumhverfi sínu.

 

Verkefni nemenda Þjórsárskóla er að reisa stein við Seggjasæti í Gaukshöfða til minningar um að Gaukur Trandilsson  var veginn þar úr launsátri.

En Seggjasæti, svo nefnt, fór forgörðum við vegagerð  fyrir margt löngu.

Forgöngu um Landsbyggðarvini hefur Fríða Vala Ásbjörnsdóttir.

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar