486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
14.05.2011

Hundrað ára gömul sýslunefnd og allir í leik

Söfnin á Eyrarbakka opna
Hundrað ára gömul sýslunefnd og leikir barna verða viðfangsefni tveggja sýninga sem opna á söfnunum á Eyrarbakka á menningarhátíðinni Vor í Árborg.
Sýningin Fundað í Fjölni verður opnuð á föstudagskvöldið 13. maí kl. 18.00 í Húsinu, Byggðasafni Árnesinga. Á sýningunni verður elsta ljósmynd sem til er af Sýslunefnd Árnesinga og er frá árinu 1911 krufin til mergjar. Gægst verður  inn í veröld þessara virðulegu skeggaðra manna sem birtast okkur í gamalli snjáðri ljósmynd. Á meðal þeirra er sr. Valdimar Briem á Stóra-Núpi og þrír aðrir prestar en flestir voru sýslufulltrúarnir bændur og hreppstjórar. Við opnun sýningarinnar syngur Kolbrún Huld Tryggvadóttir söngkona frá Stokkseyri.
Í Sjóminjasafninu verður  á laugardaginn opnuð ljósmyndasýningin Allir í leik sem sýnir brot af leikjum barna í Árnessýslu á liðinni öld. Þennan dag verða börn í forgrunni, ratleikur verður um safnasvæðið, hægt verður að kaupa far með kassabíl og ýmsar nýjungar kynntar.
Sunnudagurinn hefst í Húsinu með morgunkaffi í félagskap eldri borgara. Síðar um daginn mæta hjónin úr Brennu, Súsanna og Þór ásamt vinum, og spila vorið inn í hjörtu gesta.
Frítt er í bæði söfnin á Vor í Árborg. Almennur opnunartími safnanna er  kl. 11-18 alla daga fram til 15. september. www.husid.com.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar