Skeiða- og Gnúpverjahreppur eignast sundlaug Landsvirkjunar í Þjórsárdal
Landsvirkjun og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafa í dag (5. maí) gert með sér samkomulag um yfirtöku Skeiða- og Gnúpverjahrepps á sundlaug Landsvirkjunar í Þjórsárdal með öllum réttindum sem henni fylgja.
Sundlaugin í Þjórsárdal var upphaflega byggð skömmu fyrir 1980. Síðan þá hafa ýmis mannvirki sem tengjast rekstri sundlaugarinnar og starfsemi hennar verið byggð og endurbætt. Sundlaugin er í dag rekin og kostuð af Landsvirkjun.
Sundlaugin í Þjórsárdal er vestan Fossár milli Reykholts og Rauðukamba. Starfsmenn Landsvirkjunar á byggingartíma Búrfellsvirkjunar byggðu fyrsta grunninn að sundlauginni með því að grafa gryfju sem þeir fóðruðu með segldúk á meðan Búrfells-virkjun var í byggingu.
Fljótlega fengu starfsmenn afgangssteypu frá Búrfellsvirkjun til að steypa laugina. Jarðvarmi var fenginn úr sjálfrennandi hver við laugina, með u.þ.b. 70° heitu vatni. Kalt vatn fæst með söfnun á vatni úr lindum í hlíðum ofan laugar. Heitt neysluvatn er fengið með upphitun á köldu vatni um spíral sem liggur í hvernum. Laugin tekur um 700 tonn af vatni.
Í úrskurði óbyggðanefndar nr. 7/2000 er meðal annars fjallað um sundlaug Landsvirkjunar í Þjórsárdal. Þar kemur fram að sundlaugin er skráð í fasteignamati og að Landsvirkjun sé hvorki eigandi landsréttinda né jarðhitaréttinda sem þar um ræðir en sé hins vegar eigandi mannvirkja.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur þarf því að semja sérstaklega við eigendur vatnsréttinda og lands um áframhaldandi nýtingu vatnsréttinda og lands á svæðinu.
Með samkomulaginu afsalar Landsvirkjun Skeiða- og Gnúpverjahreppi til fullrar eignar og framtíðarumráða sundlauginni með öllum mannvirkjum, réttindum og skyldum sem henni fylgja. Yfirtakan miðast við 5. maí 2011.
Reykjavík, 5. maí 2011
Nánari upplýsingar veitir:
Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri
s. 515 9000 ragna@lv.is
Myndin er tekin við þetta tækifæri.
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Gunnar Örn Marteinsson oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps við undirritun samkomulagsins.




