Viðurkenning fyrir afbragðsstörf í þágu aldraðra veitt Dvalarheimilinu á Blesastöðum
Í 5. tbl. Dagskrárinnar þann 5. maí á bls. 11 segir frá viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands 2010 fyrir afbrags störf í þágu aldraðra.
Viðurkenninguna hlaut Dvalarheimilið á Blesastöðum á Skeiðum og veitti Hildur Hermannsdóttir forstöðukona heimilisins verðlaununum viðtöku en þau eru verk eftir leirlistarkonuna Steinunni Marteinsdóttur.
Sr. Bernharður Guðmundsson fráfarandi formaður Öldrunarráðs Íslands og Pétur Magnússon núverandi formaður Öldrunarráðsins afhentu viðurkenninguna.
Eins og segir í frétt Dagskrárinnar byggist heimilisbragur Blesastaðaheimilisins á virðingu og hlýjum kærleika við heimilisfólkið og þar nýtur fólkið umhyggju og öryggis og góðs félagsskapar á ævikvöldi sínu.
það er gott til þess að vita að innan sveitarfélagins er unnið af slíkum metnaði og kærleika í þessum málaflokki og innilegar hamingjuóskir fylgja hér til Hildar, starfsmanna og heimilisfólksins á Blesastöðum.
Hægt er að nálgast fréttina í heild sinni hér.




