Góðir gestir á ferð með gjafir
Þriðjudaginn 03.05.2011 komu þau Áslaug Þorleifsdóttir og Benedikt G. Sigurðsson og hittu hreppsnefndina á fundi í Árnesi en Benedikt starfaði í hreppsnefnd Gnúpverjahrepps á árunum 1982-1994 og bjuggu þau hjón við Búrfellsvirkjun frá 1969-1999.
þau komu færandi hendi og afhentu sveitarstjórn tvær vatnslitamyndir, listilega, málaðar af Sigurlín Grímsdóttur á Votumýri hér í sveit, af gamla leitarmannakofanum í Hólaskógi. Samantekt í riti, fylgdi, um sögu endurgerð kofans sem var illa farinn, en Benedikt hafði forgöngu um endurreisnina á sínum tíma og fékk til liðs við sig fyrrverandi hreppsnefndarmenn og verkinu lauk 4. september 1996 við hátíðlega athöfn.
Sagðist Benedikt hvorki fyrr né síðar hafa haft menn á biðlista við að vinna sjálfboðavinnu en ekki skorti vinnufúsar hendur fyrrum hreppsnefndarmanna við verkið og vildu þau hjón að sveitarstjórn varðveitti myndirnar til minningar um þessa vinnu og finndi þeim verðugan stað.
Var þeim góðu hjónum þakkað kærlega fyrir af oddvita og nú verður hugað að því að koma myndunum fyrir á stað við hæfi.
Sigurlín málaði myndirnar árin 1996 og '97 og heita þær þeim skemmtilegu nöfnum "Í Hólaskógi fyrir viðreisn 1996" og " Eftir viðreisn 1997."
Hægt er að nálgast samantekt Benedikts hér.
Meðf. mynd er af sveitarstórn og þeim Áslaugu og Benedikt við afhendingu myndanna þann 03. maí. Ljósm. khg.




