28.04.2011
Umhverfisnefnd Þjórsárskóla fær verðlaun sem varðliðar umhverfisins.
"Varðliðum umhverfisins" voru veitt verðlaun í Þjóðmenningarhúsinu þann 28. apríl 2011 og var það umhverfisnefnd Þjórsárskóla sem hlaut þau þetta árið.
Varðliðar umhverfisins er verkefnasamkeppni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur um umhverfismál.
Verðlaunin eru fyrir bækling um flokkun sorps í sveitarfélaginu sem dreift verður á hvert heimili innan skamms.
Við óskum nemendum og kennurum innilega til hamingju með þessa viðurkenningu og erum ánægð með framlag þeirra í þágu umhverfismála.
Fréttin er birt á heimasíðu Þjórsárskóla og er í heild sinni hér.




