Laus kennarastaða við Þjórsárskóla
Það er laus kennarastaða við Þjórsárskóla, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Um er að ræða nýja stöðu til eins árs, sem skiptist í 80% sérkennslu og 20% verkefnastjórnun.
Verkefnastjórn verður útfærð nánar af skólastjóra en aðalverkefni verða í tengslum við sérkennslu, sérþarfir nemenda og umsjón með slíku starfi innan skólans og samstarf við aðra vegna þessa.
Önnur verkefni eru ákvörðun skólastjóra í samræmi við skólastarfið. Leitað er að grunnskólakennara með framhaldsmenntun í sérkennslufræðum og/eða aðra framhaldsmenntun sem nýtist í sérkennslu.
Gerð er krafa um góða reynslu af lestrarkennslu og kennslu barna með frávik. Einnig að viðkomandi hafi sýnt frumkvæði í kennslu og tileinkað sér fjölbreyttar kennsluaðferðir.
Að auki þarf viðkomandi að hafa góða samskiptahæfileika og reynslu af samstarfi í kennslu.
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2011.
Skólastjóri Ingibjörg María Guðmundsdóttir tekur við umsóknum á netfangið: inga@thjorsarskoli.is eða á póstfangið: Þjórsárskóli, Árnesi, 801 Selfoss.
Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri í ofangreindu netfangi og í síma 486-6051/864-5481.
Laun eru skv. samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2011.
Ljósm: khg. Þjórsárskóli




