486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
24.03.2011

Námskeið í fuglaleiðsögn á Suðurlandi

Námskeið í fuglafræði og fuglaleiðsögn fyrir leiðsögumenn, ferðaþjónustuaðila og aðra áhugasama verður haldið á Suðurlandi í vor. Dagana 15. apríl kl 14:00-19:00 og 17. apríl kl 13:00-18:00 verða fyrirlestrar og 30. apríl og 14. maí verður útikennsla.

Áhersla verður á fuglaskoðun á Suðurlandi. Námskeiðið tekur alls 24 klst. Fyrirlestrar verða í Glaðheimum við Tryggvagötu 36 á Selfossi. Námskeiðið verður vottað með viðurkenningarskjali.

Kostnaður við námskeiðið er niðurgreiddur af klasanum ,,Fuglar á Suðurlandi“, sem styrktur er af Vaxtarsamningi Suðurlands. Námskeiðsgjald er Kr. 15000.


Námsgögn:
Þátttakendur komi með greiningarbók (t.d. Fuglavísi) og sjónauka í vettvangsferðir. Glærur úr fyrirlestrum og listi yfir ítarefni verða afhentar á staðnum.


Áhugasamir skrái sig á námskeiðið með tölvupósti á netfangið hrafnkell@hfsu.is í síðasta lagið 8. apríl nk.

Námsefni:
Einkenni fugla og lífshættir: Innri og ytri bygging, aðlaganir að flugi, fjaðrafellir, skynjun, fæðunám, æxlun og ungauppeldi.

Stofnvistfræði: r og K stofnar, stofnstjórnun, mikilvægi búsvæða.

Atferli: Mótun atferlis, gerðir atferlis og greining, farflug.

Vistfræði algengra íslenskra  fugla: Andfuglar, sjófuglar, vaðfuglar og aðrir.

Vistkerfi og náttúruvernd: Ríkjandi íslensk vistkerfi og virkni þeirra.

Sérstaða Íslands: Líflandafræði Íslands og einkenni fánunnar,  sjór og búsvæði á landi.

Fuglaskoðun á Suðurlandi: Einkenni Suðurlands og helstu fuglaskoðunarstaðir.

Fuglaskoðun og fuglaskoðarar: Fuglagreiningar, hvar og hvenær er gott að skoða fugla, útbúnaður, umgengni við fugla og öryggi ferðamanna, gerðir fuglaskoðunar og mismunandi markhópar.


Kennarar:
Erpur Snær Hansen, Jóhann Óli Hilmarsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Tómas Grétar Gunnarsson.


Erpur Snær Hansen  er deildarstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands. Hann lauk doktorsprófi í vist-, þróunar- og flokkunarfræði frá University of Missouri, St.-Louis, BNA 2003. Hann hefur stundað rannsóknir í yfir 20 ár með áherslu á atferli, vistfræði, lífeðlisfræði og stofnstjórnun sjófugla.

Jóhann Óli Hilmarsson  hefur stundað fuglaljósmyndun, fuglarannsóknir og leiðsögn í fuglaskoðunarferðum og fuglaljósmyndaferðum um árabil.  Hann er höfundur Fuglavísis og fleiri bóka og er formaður Fuglaverndar.

Ragnhildur Sigurðardóttir er verkefnisstjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands. Hún lauk doktorsprófi í vistfræði frá Yale University í Bandaríkjunum 2000. Ragnhildur hefur stundað rannsóknir á vistkerfum og búsvæðum fugla og er verkefnisstjóri klasa sem vinnur að uppbyggingu fuglaferðamennsku á Suðurlandi.  Ragnhildur starfaði áður sem leiðsögumaður og var virk í félagsstörfum fyrir  Félag  leiðsögumanna.

Tómas Grétar Gunnarsson er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Hann lauk doktorsprófi í fuglavistfræði frá University of East Anglia í Bretlandi 2005. Hann hefur stundað fjölbreyttar rannsóknir á íslenskum fuglastofnum og búsvæðum þeirra með áherslu á vaðfugla og stofnstjórnun farfugla. Hann hefur umsjón með kennslu í fuglafræði við Háskóla Íslands.

 

Ljósm.: khg.   Oddaflug grágæsa.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar