15.03.2011
Málþing um skólamál í Árnesi 26. mars n.k.
Skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps stendur fyrir málþingi laugardaginn 26. mars kl. 10-14 í Félagsheimilinu Árnesi.
Málþingið hefst á framsögu skólastjóra um málefni skólanna og að þeim loknum stýra fulltrúar í skólanefnd umræðuhópum.
Samantekt og kynning á hópastarfi verður í lok dags.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.




