486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
26.02.2011

Breyttur opnunartími sundlauga frá 14. mars - 10. júní 2011

  • 1
  • 2

Vegna hagræðingar í rekstri Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur verið ákveðið að draga úr opnunartíma sundlauganna þ.e. frá 1. mars til 10. júní en þá er reiknað með að sumaropnunartími lauganna verði með svipuðu sniði og verið hefur.

Þá minnum við á breytta reglugerð um sundstaði sem tók gildi þann 1. janúar 2011.

Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna.  Börn eru á ábyrgð foreldra og/eða forráðamanna á sundstöðum! 

Svo  stendur í 14. gr. reglugerðarinnar sem gildir um alla sund- og baðstaði  sem almenningur hefur aðgang að.

Reglugerðin byggir á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

Sundgestir eru  beðnir að framfylgja reglugerð þessari og láta sundlaugarverði ekki þurfa að árétta hana við sig.

 

Neslaug      sími:  486-6117

Skeiðalaug  sími:  486-5500

 

Yfirumsjón: Steinunn Ágústa Einarsdóttir

 

Athugið:    aðeins er 10 mínútna akstur á milli sundlauga.

           

Opið  frá 14. mars  -  10. júní  2011. 

 

Neslaug:        Alla mánudaga   kl. 17:00  -  21:00

Skeiðalaug:  Alla fimmtudaga  kl. 17:00  -  21:00

 

 

        Opið   Laugardaga

 

Neslaug        Laugard. 5. mars. kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard. 12. mars. kl. 13 - 17

 

Neslaug        Laugard. 19. mars. kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard. 26. mars  kl. 13 - 17

 

Neslaug        Laugard. 2. apríl   kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard.  9. apríl  kl. 13 - 17

 

Neslaug        Laugard. 16. apríl  kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard.  23. apríl kl. 13 - 17

 

Neslaug        Laugard. 30. apríl  kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard. 7. maí    kl. 13 - 17

 

Neslaug        Laugard. 14. maí  kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard. 21. maí  kl. 13 - 17

 

Neslaug        Laugard. 28. maí  kl. 13 - 17

Skeiðalaug   Laugard. 4. júní  kl. 13 - 17

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar