486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
03.02.2011

Ályktun félagsmálanefndar Uppsveita Árnessýslu og Flóa á fundi 02.02.2011

Félagsmálanefnd uppsveita Árnessýslu og Flóa skorar á ríkisstjórnina að tryggja fullnægjandi löggæslu í Árnessýslu.


Félagsmálanefnd hefur þungar áhyggjur af niðurskurði löggæslumála í Árnessýslu þar sem það varðar öryggi barna að lögreglan getur ekki sinnt þeim  aðstoðarbeiðnum sem berast, m.a. frá heimilum í vanda.

Mikilvægur liður í störfum lögreglunnar eru forvarnir, s.s. eftirlit með útivistartíma og áhættuhegðun ungmenna.

Með þeim niðurskurði sem orðinn er, er  ljóst að öryggi íbúa og gesta svæðisins er verulega ógnað.


Laugarási 02.02.2011


Harpa Dís Harðardóttir, formaður
Bjarney Vignisdóttir
Kristín Ólafsdóttir
Hörður Óli Guðmundsson
Anna Alma Oddsdóttir

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar