486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
22.02.2011

Leikverkið GAUKSSAGA frumsýnt 26. mars í Árnesi

 

Það hefur lengi verið draumur heimamanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að til yrði leikrit um Gauk Trandilsson á Stöng og örlagasögu hans. Vilborg Halldórsdóttir leikkona úr Reykjavík hefur samið leikverkið GAUKSSÖGU. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja ásamt Ásborgu Arnþórsdóttur ferðamálafulltrúa hittust 20. janúar sl. og gerðu samning við Vilborgu um að hún leikstýri verkinu. Búið er að skipa í hlutverk GAUKSSÖGU og hittust leikarar á samlestri fyrir jól.  Æft  af krafti og frumsýnt verður laugardaginn 26. mars kl. 20:00 í Árnesi.

Gert er ráð fyrir að sýnt verði 10 sinnum og eingöngu í Árnesi.

 

Laugardagur,  26. mars kl.20:00   FRUMSÝNING
Sunnudagur,   27. mars kl.20:00   önnur sýning

 

 

Föstudagur,   1. apríl kl. 20:00    þriðja  sýning
Laugardagur,  2. apríl kl. 20:00   fjórða  sýning
Sunnudagur,   3. apríl kl. 15:00   fimmta  sýning

 

 

Laugardagur,  9. apríl kl. 20:00  sjötta  sýning
Sunnudagur, 10. apríl kl. 15:00  sjöunda sýning

 

 


Föstudagur,  15. apríl kl. 20:00  áttunda  sýning
Laugardagur, 16. apríl kl. 20:00  níunda  sýning
Sunnudagur,  17. apríl kl. 15:00, tíunda   sýning

 

Almennt verð: 2.000 kr.
 
12 ára og yngri: 1.700 kr.
 
Leikskrá: 300 kr.
 
Eldri borgarar: 1.700 kr.

Sýningartilboð

 

Heimasíða hér

 

Á myndinni er stjórn leikdeildar Ungmennafélags Gnúpverja,  f.v. Þóra Þórarinsdóttir, Haga 2, Eyþór Brynjólfsson, Hamragerði 2,  og  Sigrún Bjarnadóttir  Fossnesi ásamt Vilborgu Halldórsdóttur leikstjóra við undirritun samningsins.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar