486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
18.01.2011

Íþrótta- og æskulýðsstyrkur kr 50. þúsund árið 2011 fyrir 6 - 18 ára.

Hér á eftir fer bókun sveitarstjórnar á 9. fundi sínum þann 7. desember  2010.

"Sveitarstjórn  Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára  til  og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50.000.- kr. á  árinu 2011 til að stunda íþrótta, æskulýðs eða menningarstarf.
Með umsókn þarf að fylgja kvittun um greiðslu frá aðila sem uppfyllir skilyrði að um viðurkennda starfsemi sé að ræða og fagaðilar sjái um þjálfun og /eða menntun."

 

þennan styrk hefur verið hægt að sækja um undan farin ár en nú hækkar hann úr 30 þús. í 50 þúsund.

 

Morgunský yfir Heklu og Skarðsfjalli þann 04.10.2010,  kl. 07:24.  Ljósm khg.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar