14.01.2011
Malarbraut, Holtabraut og Vallarbraut skulu þær heita
Göturnar í Brautarholti hafa nú fengið nöfn og eftirfarandi er bókun sveitarstjórnar af síðasta fundi sínum þann 11. janúar um málið.
"Sveitarstjórn þakkar íbúum fyrir góðar tillögur að götunöfnum í Brautaholti
og samþykkir að nöfnin Malarbraut, Holtabraut og Vallarbraut verði notuð hér eftir. Ágúst Guðmundsson, Brautarholti sendi þessar tillögur til sveitarstjórnar og á hann ómældan heiður skilið af komandi kynslóðum."




