15.12.2010
Hundafangari ráðinn í Skeiða - og Gnúpverjahreppi
Ragnar Sigurjónsson, Flóahreppi, hefur verið ráðinn hundafangari í Flóahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Helstu verkefni hundafangara eru að svara fyrirspurnum og greiða úr málum sem upp kunna að koma vegna hundahalds í sveitarfélögunum. Einnig að annast vörslu hunda sem handsamaðir eru með vísan til samþykkta um hundahald í sveitarfélögunum.
Sími hjá Ragnari er 859-9559.




