Gjaldskrá Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2011
Tillaga að gjaldskrá Skeiða-og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2011 var lögð fram á 09. fundi sveitarstjórnar 07. desember 2010.
Sveitarstjórn samþykkti tillöguna og er hún eftirfarandi:
Útsvar
Sveitarstjórn samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt frá fyrri ákvörðun á fundi sveitarstjórnar þann 16. nóv. 2010, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um að lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið þá 14,48% á árinu 2011.
Vatnsgjald
Gjaldskrá vatnsveitu fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði, verður óbreytt frá þeirri gjaldskrá sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 6. október 2009. Vatnsgjald sumarhúsa verður 24.000.-kr.
Seyrulosunargjald
Árlegt gjald fyrir losun á seyru samkvæmt samþykkt nr. 149/2004 um hreinsun fráveituvatns og reglubundna losun, vinnslu eða förgun seyru verður 5.833.- kr. á rotþró.
Sorpgjöld
Sorpgjöld er lögð á samkvæmt samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 8. des 2005. Samþykktin var staðfest á 84. fundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands þann 14. mars 2006, og staðfest af Umhverfisráðuneyti þann 5. janúar 2007. Sorpgjöld árið 2011 verða eftirfarandi.
Sorphirðugjald 240 L 11.077.- kr.
Sorphirðugjald 660 L 32.603.- kr.
Sorphirðugjald 1.100 L 53.985.- kr.
Sorpeyðingargjald íbúðarhús 11.218.- kr.
Sorpeyðingargjald sumarhús 8.400.- kr.
Sorpeyðingargjald atvinnu 30.565.- kr.
Holræsagjald
Lagt verður á holræsagjald á þeim stöðum þar sem sveitarfélagið er með holræsakerfi, gjaldið nemur 0.15% af fasteignamati. Gjaldið verður innheimt þegar samþykkt um fráveitur í Skeiða-og Gnúpverjahreppi hefur verið staðfest.
e. Lóðaleigugjöld innheimtast eftir lóðaleigusamningum.
Gjaldskrá grunnskóla frá 1. janúar 2011
Skólamötuneytisgjöld
Morgunhressing kr. 66,-
Hádegisverður kr. 218,-
Skólavistun
Skólavistun klst. kr. 201,-
Aukavistun klst. kr. 298,-
Náðarkorter 15 mín. Kr. 78,-
Gjaldskrá leikskóla frá 1. janúar 2011
Ein stök morgunhressing kr. 62,-
Einn stakur hádegisverður kr. 177,-
Ein stök síðdegishressing kr. 74,-
Klukkustundargjald kr. 118,-
klst.gjald 75% kr. 88,-
klst. gjald 50% kr. 56,-
9. klukkustundin kr. 200,-




