486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
09.12.2010

Sveitarstjórn greiðir 50.000,- tómstundastyrk árið 2011

Sveitarstjórn samþykkti á 08. fundi sínum þann 07. desember  að hækka  æskulýðs- og tómstundastyrkinn 1. janúar 2011.

Bókað var eftirfarandi á fundinum:

Sveitarstjórn  Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára  til  og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50.000.- kr. á  árinu 2011 til að stunda íþrótta,  æskulýðs eða menningarstarf.
Með umsókn þarf að fylgja kvittun um greiðslu frá aðila sem uppfyllir skilyrði að um viðurkennda starfsemi sé að ræða og fagaðilar sjái um þjálfun og /eða menntun.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar