Sveitarfélagið tekur þátt í kostnaði við kaup á námsmannakortum sem gilda í strætó bs.
Á 06. fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 6. október 2010 samþykkti sveitarstjórn reglur um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði námsmanna við kaup á strætókortum á höfuðborgarsvæðinu.
Reglurnar eru birtar hér og umsóknareyðublað er á heimasíðunni hér til vinstri undir Stjórnkerfið/Eyðublöð.
1.gr.
Námsmenn sem skráðir eru til náms í framhaldsskóla eða háskóla á höfuðborgarsvæðinu og eru með lögheimili í Skeiða-og Gnúpverjahreppi eiga þess kost að fá styrk til kaupa á námsmannakorti allt að 15.500,- kr. sem veitir aðgang að almenningsvögnum Strætó bs. á gjaldsvæði 1.
Framhaldsskólinn þarf að útskrifa nemendur til framhaldsnám á háskólastigi eða námið vera lánshæft hjá LÍN minnst 20 ECTS.
Námsmenn í símenntunarmiðstöðvum og framhalds- og listaskólum þar sem nemendur eru ekki lánshæfir hjá LÍN eiga ekki kost á nemakorti. Nemendur í fjarnámi eiga ekki kost á námsmannakorti. Nemendur í grunnskóla, sem taka námskeið eða námsgrein(ar) í framhaldsskóla, eiga ekki kost á námsmannakorti.
2.gr.
Verð á námsmannakorti sem gildir í strætó fyrir skólaárið 2010 – 2011 er 15.500,- . Styrkur til kaupa á námsmannakorti fyrir hvora önn fyrir sig er kr. 7.750,-
Með umsókn þarf að fylgja frumrit kvittunar fyrir kaupum á námsmannakortinu, og staðfesting skóla um nám umsækjanda.
Reglurnar gilda fyrir skólaárið 2010- 2011.




