486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
19.11.2010

Menningarkvöldið í Brautarholti, skemmtilegt.

  • 1
  • 2
  • 3

Menningarkvöld var haldið í Bókasafni Skeiða- og Gnúpverjahrepps  í Brautarholti 18.nóv. 2010.


Sigrún Guðlaugsdóttir formaður  Menningar, æskulýðs, velferðar-og jafnréttisnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps bauð gesti velkomna og kynnti dagskrá kvöldsins en nefndin stóð fyrir þessari samkomu.


Fyrstur kom fram  Ari Trausti Guðmundsson, rithöfunndur og  las hann upp og  sýndi myndir úr nýrri bók sinni um  Eyjafjallajökul myndskreytta af Ragnari Th. Sigurðssyni  og  einnig las  hann úr nýrri ljóðabók sinni Blindhæðir sem er heildstæð bók og fjallar um ævi manns, mjög áhugaverðar bækur, báðar tvær.


Fram kom að Ari hefur ekki setið iðjulaus um ævina, því útkomnar eru eftir hann yfir 40 bækur fyrir utan allar sjónvarpsmyndir og þætti sem hann hefur unnið.


Þá las Sigurður Fannar Guðmundsson úr bók sinni sem kom út í fyrra Trúður, metsölubók. Skemmtilegur kafli sem rithöfundurinn las upp og hann upplýsti að bókin er skáldsaga en byggð á sönnum atburðum.


Þetta er fyrsta bók Sigurðar Fannars en ekki sú síðasta að hans sögn því önnur bíður tilbúin og gaman að upplifa hans fyrstu skref sem rithöfundur og  svo að heyra þaulreyndan rithöfund og fræðimann sem  Ari Trausti er.


Að síðustu fluttu þau Þóra Gylfadóttir  og Jón Bjarnason organisti í Skálholti þrjú lög og fóru þau á kostum, bæði tvö, við góðar undirtektir viðstaddra.


Eftir dagskrána bauð nefndin upp á kaffi, konfekt og  smákökur  og fólk spjallaði og naut samveru.


Húsfyllir var því sem næst og var þetta fróðleg og afar skemmtileg stund að mati gesta.


Mynd nr. 1 Ari Trausti les úr bókinni um Eyjafjallajökul, falleg bók og fróðleg.


Mynd nr. 2. Sigurður Fannar með sína bók,  Trúður, metsölubók.


Mynd nr. 3.  Þóra Gylfadóttir og Jón Bjarnson flytja aukalag sem ekki varð hjá komist.  Ó Jesú barn blítt.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar