486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
19.11.2010

Staða flokkunarmála í Skeiða og Gnúpverjahreppi

  • 1
  • 2

Íbúar í Skeiða og Gnúpverjahreppi hafa nú flokkað heimilissorp sitt í rúmt ár. Innleiðing flokkunarkerfisins gekk vel í sveitarfélaginu og voru íbúar afar jákvæðir. Miklar breytingar hafa orðið í sorpmálum sunnlendinga undanfarið og nægir þar að nefna lokun urðunarstaðarins í Kirkjuferjuhjáleigu sem varð til þess að öllu sorpi af suðurlandi þarf að keyra til urðunar í Álfsnes í Reykjavík.

 Kostnaður við flutninga á sorpi hefur í kjölfarið aukist mikið vegna aukinnar vegalendar að urðunarstað. Að auki er kostnaðurinn við urðun í Álfsnesi ríflega þrefalt hærri en kostnaður var við urðun í Kirkjuferjuhjáleigu. Fjárhagslegur ávinningur flokkunarinnar er því mikill þar sem einungis þarf að urða þann hluta heimilissorpsins sem fer í gráu tunnuna.


Umhverfislegur ávinningur af flokkuninni er ekki síður mikilvægur þar sem urðun á úrgangi er uppspretta margvíslegra neikvæðra umhverfisáhrifa. Endurvinnsla hefur á hinn bóginn jákvæð áhrif þar sem endurvinnsla hráefna sparar bæði náttúruauðlindir og orku.

Íbúar í Skeiða og Gnúpverjahreppi hafa lagt mjög mikið af mörkum til umhverfisins með flokkuninni. Sem dæmi má nefna að á einu ári safnast um 20 tonn af pappír og pappa frá íbúum Skeiða og Gnúpverjahrepps og endurvinnsla þess jafngildir því að um 340 fullvaxta tré sparast sem annars hefði þurft að fella til pappírs og pappa framleiðslu. Auk þess veldur endurvinnsla pappírs mun minni loft- og vatnsmengun miðað við frumvinnslu hans.


Stærsti hluti heimila í sveitarfélaginu safnar lífrænum heimilisúrgangi í brúnu tunnuna. Það sem af er árinu hafa safnast um 20 tonn af lífrænum heimilisúrgangi í sveitarfélaginu. Lífræni hluti sorpsins er fluttur í flokkunarstöð Íslenska gámafélagsins á Selfossi þar sem honum er breytt í moltu sem nýta má til gróðursetningar og uppgræðslu landsvæða. Þannig má segja að verið sé að viðhalda náttúrulegri hringrás næringarefna.

Endurvinnsla lífræna hluta sorpsins er einnig mikilvægt umhverfismál því lífrænn úrgangur sem fer í urðun er uppspretta skaðlegra gróðurhúsalofttegunda sem sleppa frá urðunarstöðum. Með því að jarðgera úrganginn með þeirri aðferð sem notuð er hjá Íslenska gámafélaginu er komið í veg fyrir að þessar skaðlegu lofttegundir myndist.


Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru íbúar í Skeiða og Gnúpverjahreppi duglegir við að halda heyrúlluplastinu frá öðru sorpi. Allt plast sem Íslenska gámafélagið sækir úr sveitarfélaginu er endurunnið af PM endurvinnslu sem er sérhæft fyrirtæki í plastendurvinnslu. Við endurvinnsluna er plastið tætt og síðan þvegið og þurrkað áður en það fer í endanlega endurvinnslu. Afurð endurvinnslunnar hjá PM eru litlar plastkúlur sem notaðar eru sem hráefni í allskyns vörur úr plasti. Þannig er ekki útilokað að heyrúlluplastið úr Skeiða og Gnúpverjahreppi skili sér aftur sem vegstika eða jafnvel stuðari á bíl.


Um 49% af því sorpi sem fellur til frá heimilum innan sveitarfélagsins fer nú í endurvinnslu. Um 16% er lífrænn úrgangur sem er jarðgerður og 16% eru endurvinnsluhráefni sem nú þegar hafa verið flutt úr landi til endurvinnslu. Það sorp sem endar í urðun er um 51% af heildinni, en markmiðið er að draga sem mest úr þessum hluta.


Eins og sjá má hér að neðan er árangurinn mjög góður og vel hefur tekist til að flokka. Að sjálfsögðu má gera enn betur og draga mun meira úr sorpi en nú. Sérstaklega viðist vera hægt að auka hlutfall í Grænu tunnunni.

Vert er að minna á að í Grænu tunnuna má setja allar plastumbúðir, allan pappír og pappa og alla minni málmhluti sem falla til á heimilinu.


Nánari upplýsingar um hvað má fara í grænu tunnuna má finna í flokkunarhandbókinni sem dreift var á öll heimilis sveitarfélagsins. Frekari upplýsingar má einnig finna á heimasíðu sveitarfélagsins og á  www.flokkarinn.is


Þau endurvinnsluhráefni sem hefur verið safnað saman hafa nú skilað sér til flokkunarmiðstöðvar Íslenska Gámafélagsins þar sem þeim hefur verið skipað út til endurvinnslu.


Íslenska Gámafélagið ítrekar að þá sem vantar upplýsingar og/eða ráðgjöf er bent á að hringja í aðalsíma félagsins: 577-5757 eða senda tölvupóst á igf@igf.is.

 

Skipting sorpflokka jan-okt 2010

 
 Grá kgBrún kgGræn kgRúlluplast kgAlls kg
Alls78.18024.47224.57024.970152.192
      
      
 Grá kgBrún kgGræn kgRúlluplast kg 
Flokkunarhlutfall51%16%16%16% 
Flokkun án rúlluplasts61%19%19%  
 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar